Húsafell, verslunar- og þjónustusvæði, óveruleg breyting á deiliskipulagi. Byggðarráð Borgarbyggðar í umboði sveitarstjórnar Borgarbyggðar hefur samþykkt tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir verslunar- og þjónustusvæði í Húsafelli. Ástæða breytingar er fyrirhuguð stækkun þjónustumiðstöðvar. Breyting á deiliskipulagi Húsafells, verslunar- og þjónustusvæðis, tekur til færslu á lóðarmörkum á lóð þjónustumiðstöðvar (landnr. 134503), ásamt byggingarreit hennar. Byggingarmagni viðbyggingar þjónustuhúss er breytt úr 100 m² í að heimilt sé að auka byggingarmagnið innan byggingarreits í allt að 200 m². Lóð þjónustumiðstöðvar er undir hverfisvernd er varðar birkiskóga og kjarr og undir aðrar náttúruminjar á náttúruminjaskrá 1996. Byggingarreitur þjónustumiðstöðvar er staðsettur á röskuðu svæði, við uppbyggingu þjónustumiðstöðvar skal öllu raski haldið í lágmarki. Fyrirhuguð breyting er í samræmi við aðalskipulag Borgarbyggðar 2010-2022. Nágrannar gerðu ekki athugasemd við grenndarkynningu. Málsmeðferð var samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Borgarnesi, 23. ágúst 2019.
Gunnlaugur A. Júlíusson sveitarstjóri.
|