Deiliskipulag fyrir Sunnuhlíð 12, Akureyri. Bæjarstjórn Akureyrarbæjar samþykkti 14. júlí 2022 deiliskipulag fyrir Sunnuhlíð 12. Viðfangsefni deiliskipulagsins er uppbygging heilsugæslustöðvar í verslunarmiðstöðinni Sunnuhlíð ásamt viðbyggingu við núverandi húsnæði, göngustígatengingum og umferðarflæði. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð í samræmi við 40.-42. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast hún þegar gildi.
F.h. Akureyrarbæjar, 28. júlí 2022,
María Markúsdóttir, verkefnastjóri skipulagsmála.
|