Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1735/2021

Nr. 1735/2021 28. desember 2021

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar, verslun og þjónusta í landi Stafholtsveggja II.

Skipulagsstofnun staðfesti 28. desember 2021 breytingu á aðalskipulagi Borgarbyggðar 2010-2022 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. ágúst 2021.
Í aðalskipulagsbreytingunni felst að um 4,5 ha af landbúnaðarsvæði er skilgreint sem svæði fyrir verslun og þjónustu (S11) í landi Stafholtsveggja II vegna áforma um uppbyggingu ferðaþjónustu þar sem m.a. er gert ráð fyrir gistingu með að hámarki 195 gistirúmum í núverandi byggingum og 20-30 gistiskálum, auk tveggja þjónustuhúsa.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 28. desember 2021.

 

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 12. janúar 2022