Sýslumannstún, deiliskipulag. Byggðarráð Rangárþings eystra samþykkti þann 28. júní 2018 deiliskipulagstillögu fyrir Sýslumannstún á Hvolsvelli. Tillagan tekur til 1,6 ha svæðis sem skilgreint er í aðalskipulagi sveitarfélagsins sem ÍB-112. Í tillögunni er gert ráð fyrir tveimur parhúsum með samtals 4 íbúðum auk bílgeymslu og einu raðhúsi með 8 smáíbúðum án bílgeymslu. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillagan öðlast þegar gildi.
Stóra Borg, deiliskipulag. Byggðarráð Rangárþings eystra samþykkti þann 28. júní 2018 deiliskipulagstillögu fyrir Stóru Borg. Tillagan tekur til byggingar tveggja frístundahúsa í landi Stóru Borgar. Deiliskipulagstillagan hefur hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagstillagan öðlast þegar gildi.
Hvolsvelli, 23. janúar 2019.
F.h. sveitarstjórnar Rangárþings eystra,
Guðmundur Úlfar Gíslason, fulltrúi skipulags- og byggingarmála.
|