Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 783/2019

Nr. 783/2019 23. ágúst 2019

REGLUGERÐ
um (3.) breytingu á reglugerð nr. 900/2018 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470 um að koma á fót skrá Sambandsins yfir nýfæði í samræmi við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 um nýfæði.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætast 6 nýir töluliðir, svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/1991 frá 13. desember 2018 um leyfi til að setja á markað ber Lonicera caerulea L. sem hefðbundin matvæli frá þriðja landi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2019, frá 8. maí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44, frá 29. maí 2019, bls. 50.
  2. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/2016 frá 18. desember 2018 um leyfi til að setja á markað afhýdd grjón af hvítfingragrasi (Digitaria exilis) sem hefð­bundin matvæli frá þriðja landi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 149/2019, frá 14. júní 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnar­tíðindi Evrópu­sambandsins nr. 49, frá 20. júní 2019, bls. 179.
  3. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2018/2017 frá 18. desember 2018 um leyfi til að setja á markað síróp úr Sorghum bicolo (L.) Moench sem hefðbundin mat­væli frá þriðja landi samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglu­gerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 149/2019, frá 14. júní 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópu­sambands­ins nr. 49, frá 20. júní 2019, bls. 182.
  4. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/108 frá 24. janúar 2019 um leyfi til að breyta nákvæmum skilgreiningum á nýju innihaldsefni í matvælum, útdrætti fitu­efnis úr suðurhafsljósátu (Euphausia superba), samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmda­stjórnar­innar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sam­eigin­legu EES-nefndarinnar nr. 114/2019, frá 8. maí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44, frá 29. maí 2019, bls. 53.
  5. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/109 frá 24. janúar 2019 um leyfi fyrir rýmkun á notkun á olíu úr Schizochytrium sp. sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2019, frá 8. maí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44, frá 29. maí 2019, bls. 56.
  6. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2019/110 frá 24. janúar 2019 um leyfi fyrir rýmkun á notkun á olíu úr fræi Allanblackia sem nýfæði samkvæmt reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2015/2283 og um breytingu á framkvæmdarreglugerð fram­kvæmdastjórnarinnar (ESB) 2017/2470. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 114/2019, frá 8. maí 2019. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 44, frá 29. maí 2019, bls. 60.

2. gr.

Matvælastofnun og heilbrigðisnefndir sveitarfélaga undir yfirumsjón Matvælastofnunar fara með eftirlit með því að ákvæðum þessarar reglugerðar sé framfylgt í samræmi við 6. og 22. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli, með síðari breytingum.

3. gr.

Um brot gegn reglugerð þessari fer samkvæmt 30. gr., 30. gr. a – 30. gr. e og 31. gr. laga nr. 93/1995 um matvæli.

4. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 31. gr. a laga nr. 93/1995 um matvæli. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 23. ágúst 2019.

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Iðunn Guðjónsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 11. september 2019