Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulag, Einiholt 3, L192608. Deiliskipulagið tekur til byggingar íbúðarhúss, skemmu og gestahúsa. Á byggingarreit B1 er heimilt að byggja allt að 250 m² íbúðarhús og bílskúr, sambyggt eða í sitt hvoru lagi. Einnig allt að 200 m² skemmu og allt að 60 m² geymslu. Á byggingarreit B2 er heimilt að byggja allt að 150 m² skemmu. Á lóðum 1 og 2 er heimilt að byggja allt að 65 m² gestahús á hvorri lóð. Samþykkt í sveitarstjórn 22. ágúst 2019.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 25. júní 2020.
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
|