Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 48/2006

Nr. 48/2006 29. desember 2006

AUGLÝSING
um gerð sem felur í sér breytingu á samningi sem ráð Evrópusambandsins og Ísland og Noregur gerðu með sér um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna.

Hinn 21. desember 2006 var ráði Evrópusambandsins tilkynnt um samþykki Íslands á ákvörðun ráðsins nr. 2006/684/EB frá 5. október 2006 um breytingu á skrá A í 2. viðauka við Sameiginlegu fyrirmælin til sendiráða og ræðisskrifstofa að því er varðar kvöð um vegabréfsáritun fyrir handhafa indónesískra diplómatískra vegabréfa og þjónustuvegabréfa, sem felur í sér breytingu á samningi sem ráð Evrópusambandsins og lýðveldið Ísland og Konungsríkið Noregur gerðu með sér 18. maí 1999 um þátttöku hinna síðarnefndu í framkvæmd, beitingu og þróun Schengen-gerðanna, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 21/2000. Breytingin öðlaðist gildi að því er Ísland varðar 21. desember 2006.

Ákvörðunin er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

Utanríkisráðuneytinu, 29. desember 2006.

Valgerður Sverrisdóttir.

Grétar Már Sigurðsson.

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 17. október 2016