Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 44/2022

Nr. 44/2022 26. ágúst 2022

AUGLÝSING
um samning milli Evrópusambandsins, Íslands, Liechtenstein og Noregs um EES-fjármagnskerfið 2009-2014.

Hinn 6. janúar 2011 var aðalskrifstofu ráðs Evrópusambandsins afhent fullgildingarskjal Íslands vegna samnings milli Evrópusambandsins, Íslands, Furstadæmisins Liechtenstein og Konungs­ríkisins Noregs um fjármagnskerfi EES 2009-2014, sem gerður var í Brussel 28. júlí og 19. ágúst 2010. Alþingi hafði með lögum nr. 159/2010, frá 28. desember 2010, um breytingu á lögum um Evrópska efnahags­svæðið, nr. 2/1993, heimilað ríkisstjórninni að fullgilda samninginn. Samn­ingnum var beitt til bráða­birgða frá 1. janúar 2011 og öðlaðist gildi 1. maí 2011.

Samningurinn er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Utanríkisráðuneytinu, 26. ágúst 2022.

 

F. h. r.

Martin Eyjólfsson.

Anna Jóhannsdóttir.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 29. mars 2023