Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 9/2023

Nr. 9/2023 17. mars 2023

LÖG
um staðfestingu ríkisreiknings 2021.

Forseti Íslands
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

 

1. gr.

Staðfesting ríkisreiknings.

    Með lögum þessum staðfestist ríkisreikningur fyrir árið 2021, sbr. 58. gr. laga um opinber fjármál, nr. 123/2015.

 

2. gr.

Gildistaka.

    Lög þessi öðlast þegar gildi.

 

Gjört í Reykjavík, 17. mars 2023.

 

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Bjarni Benediktsson.


A deild - Útgáfud.: 28. mars 2023