Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1003/2020

Nr. 1003/2020 30. september 2020

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Sveitarfélagsins Hornafjarðar vegna efnistöku í Skinney.

Skipulagsstofnun staðfesti 30. september 2020 óverulega breytingu á aðalskipulagi Sveitar­félagsins Hornafjarðar 2012-2030, sem samþykkt var í bæjarstjórn 20. ágúst 2020.
Í breytingunni felst að heimiluð efnistaka í Skinney eykst úr 30.000 m³ í allt að 49.000 m³.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulags­laga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 30. september 2020.

 

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 14. október 2020