Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 884/2022

Nr. 884/2022 12. júlí 2022

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps vegna iðnaðarsvæðis og efnistöku í landi Fagradals og Víkur.

Innviðaráðherra staðfesti 12. apríl 2022, breytingu á aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 16. júní 2021.

Í breytingunni felst að efnistökusvæði E1 austan þéttbýlisins í Vík er fært fjær fjöruborðinu auk þess sem skilgreint er nýtt efnistökusvæði E21 í Fagradalsfjöru vegna áforma um vinnslu á sandi úr fjörunni.

Mörkuð er stefna um iðnaðarsvæði I3 sunnan þjóðvegar innan þéttbýlismarka Víkur, til frekari vinnslu á sandinum.

Málsmeðferð var samkvæmt 4.-5. mgr. 32. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Innviðaráðuneytinu, 12. júlí 2022.

 

Sigurður Ingi Jóhannsson.

Ragnhildur Hjaltadóttir.


B deild - Útgáfud.: 27. júlí 2022