Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 1157/2021

Nr. 1157/2021 29. september 2021

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðarsveitar vegna aðveituæðar vatnsveitu.

Skipulagsstofnun staðfesti 29. september 2021 óverulega breytingu á aðalskipulagi Eyjafjarðar­sveitar 2018-2030 sem samþykkt var í sveitarstjórn 26. ágúst 2021.
Í breytingunni felst að bæta við aðveitulögn og stíg meðfram þjóðvegi nr. 1 frá sveitarfélaga­mörkum við Svalbarðsstrandarhrepp í norðri að sveitarfélagamörkum við Akureyri í vestri.
Málsmeðferð var vegna óverulegrar breytingar á aðalskipulagi samkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 29. september 2021.

 

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 13. október 2021