Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 464/2020

Nr. 464/2020 4. maí 2020

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra vegna Svínhaga.

Skipulagsstofnun staðfesti 4. maí 2020 breytingu á aðalskipulagi Rangárþings ytra 2016-2028 sem samþykkt var í sveitarstjórn 12. mars 2020.
Í breytingunni felst að svæði fyrir verslun og þjónustu VÞ28, stækkar úr 3 ha í um 7 ha og heimild fyrir gistipláss er aukin úr 25 í 50 í allt að 12 gestahúsum.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 4. maí 2020.

 

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 20. maí 2020