Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Ásahrepps samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Áshamrar, L165337, Áshamrar 2. Í breytingunni felst heimild fyrir stofnun lóðar á grunni skilgreinds byggingarreits innan deiliskipulagsins. Samþykkt í hreppsnefnd Ásahrepps 29. júní 2022.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 7. september 2022.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis- og tæknisviðs uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
|