Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 453/2020

Nr. 453/2020 4. maí 2020

AUGLÝSING
um deiliskipulag í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps sam­þykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlanir:

Deiliskipulagsbreyting, Vaðstígur 1, L227910, 3, L227911 og 5, L227912.
Gerð er óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi frístundasvæðis í landi Kringlu 2, sem felur í sér að nýtingarhlutfall verði 0,03, þakhalli 0-45 gráður og á hverri lóð megi auk aðalhúss reisa eitt aukahús allt að 40 m² og kæliskýli/smáhýsi allt að 15 m².
Samþykkt í sveitarstjórn 4. mars 2020.

Deiliskipulagsbreyting, Vesturkantur 6, L169407.
Gerð er óveruleg breyting á gildandi deiliskipulagi á lóðinni Vesturkanti 6, L169407, sem felur í sér að legu lóðarmarka milli lóðanna Vesturkants 6 og 6a er breytt. Byggingarreitur er gerður utan um núverandi sumarhús á Vesturkanti 6 og byggingarreit á lóð 6a breytt til samræmis við legu lóðar.

Ofangreindar deiliskipulagsáætlanir hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

 

Laugarvatni, 4. maí 2020.

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,

Vigfús Þór Hróbjartsson.


B deild - Útgáfud.: 15. maí 2020