Breyting á deiliskipulagi Skarðshlíðar, 2. áfanga, vegna Drangsskarðs 13. Á fundi skipulags- og byggingarráðs 23. febrúar sl. var samþykkt breyting á deiliskipulagi vegna Drangsskarðs 13. Breytingin felst í tilfærslu á byggingarreit, fjölgun íbúða úr tveim í þrjár og fjölgun bílastæða um eitt. Einnig er gert ráð fyrir hækkun á húsi til norðurs og suðurs. Uppdrættir ásamt greinargerð og skipulagsskilmálum hafa hlotið meðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytingin öðlast þegar gildi.
Hafnarfirði, 3. mars 2023.
F.h. skipulagsfulltrúa,
Anna Margrét Tómasdóttir verkefnastjóri.
|