Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 168/2021

Nr. 168/2021 5. febrúar 2021

AUGLÝSING
um skipulagsmál í Rangárþingi ytra.

Stóru-Vellir, deiliskipulag.
Byggðarráð í umboði sveitarstjórnar Rangárþings ytra samþykkti þann 27. ágúst 2020 tillögu að deiliskipulagi fyrir Stóru-Velli. Tillagan tekur til 14 misstórra lóða þar sem heimilt verður að byggja íbúðarhús, gestahús, útihús og gróðurhús/geymslu. Aðkoma verður af Landvegi (26) í gegnum heimreið að Stóru-Völlum. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.

 

Hellu, 5. febrúar 2021.

F.h. Rangárþings ytra,

Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 19. febrúar 2021