Deiliskipulag Æðarodda. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Akraneskaupstaðar samþykkti 27. júní 2019 breytingu á deiliskipulagi Æðarodda. Í breytingunni felst afmörkun lóðar fyrir reiðskemmu norðan aðkomuleiðar að hverfinu og að vegi syðst á skipulagssvæðinu er breytt til samræmis við núverandi legu. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagið tekur þegar gildi.
Akranesi, 25. júlí 2019.
Sigurður Páll Harðarson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs.
|