Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 366/2021

Nr. 366/2021 19. mars 2021

AUGLÝSING
um verndarsvæði jarðvarma - Háhitasvæði Geysis í verndarflokki verndar- og orkunýtingaráætlunar.

1. gr.

Um friðlýsinguna.

Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið, á grundvelli verndarflokks þingsályktunar nr. 13/141 um áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, frá 14. janúar 2013, að friðlýsa háhita­svæði Geysis: 78 Geysir í Bláskógabyggð gagnvart orkuvinnslu á grundvelli 53. gr. laga nr. 60/2013 um náttúruvernd.

Verndarsvæðið er 4,98 km² að stærð.

 

2. gr.

Markmið friðlýsingarinnar.

Tilgangur og markmið friðlýsingarinnar er að vernda háhitasvæði Geysis: 78 Geysir gegn orku­vinnslu, sbr. 1. gr.

 

3. gr.

Mörk verndarsvæðisins.

Mörk verndarsvæðisins eru sýnd á korti í viðauka I og afmarkast af þeim hnitum sem gefin eru upp í ISN93 hnitakerfi í viðauka II.

Afmörkun svæðisins er dregin út frá viðnámsmælingum jarðhitasvæðisins.

 

4. gr.

Mannvirkjagerð og orkurannsóknir.

Orkuvinnsla varmaafls með uppsett varmaafl 50 MW eða meira og jarðvarma með uppsett rafafl 10 MW eða meira innan marka svæðisins er óheimil. Ekki er heimilt að veita leyfi tengd orku­rannsóknum eða orkuvinnslu á verndarsvæðinu vegna virkjunar jarðvarma með uppsett varmaafl 50 MW eða meira og virkjunar jarðvarma með uppsett rafafl 10 MW eða meira. Að fengnu samþykki Umhverfisstofnunar og að undangenginni umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands er heimilt að stunda yfirborðsrannsóknir á verndarsvæðinu. 

 

5. gr.

Viðurlög.

Um brot gegn ákvæðum friðlýsingarinnar fer samkvæmt lögum nr. 60/2013 um náttúruvernd.

 

6. gr.

Gildistaka.

Friðlýsingin öðlast þegar gildi.

 

Umhverfis- og auðlindaráðuneytinu, 19. mars 2021.

 

Guðmundur Ingi Guðbrandsson.

Sigríður Auður Arnardóttir.

 

VIÐAUKAR
(sjá PDF-skjal)


B deild - Útgáfud.: 7. apríl 2021