Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 118/2018

Nr. 118/2018 7. desember 2018

FORSETAÚRSKURÐUR
um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti.

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt:

Samkvæmt tillögu forsætisráðherra og með skírskotun til 15. gr. stjórnarskrárinnar og laga um Stjórnarráð Íslands skiptist Stjórnarráð Íslands í ráðuneyti sem hér segir:

  1. forsætisráðuneyti,
  2. atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti,
  3. dómsmálaráðuneyti,
  4. félagsmálaráðuneyti,
  5. fjármála- og efnahagsráðuneyti,
  6. heilbrigðisráðuneyti,
  7. mennta- og menningarmálaráðuneyti,
  8. samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneyti,
  9. umhverfis- og auðlindaráðuneyti,
  10. utanríkisráðuneyti.

Úrskurður þessi öðlast gildi 1. janúar 2019. Frá sama tíma falla úr gildi ákvæði eldri forsetaúrskurðar nr. 14 frá 7. apríl 2017 um skiptingu Stjórnarráðs Íslands í ráðuneyti.

Gjört í Reykjavík, 7. desember 2018.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Katrín Jakobsdóttir.


A deild - Útgáfud.: 7. desember 2018