Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 941/2023

Nr. 941/2023 13. september 2023

AUGLÝSING
um skipulagsmál í Sveitarfélaginu Ölfusi.

Deiliskipulag Hveradala, baðlón og skíðaskáli.
Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti bæjarstjórn Sveitarfélagsins Ölfuss 26. janúar 2023, deiliskipulag Hveradala í Ölfusi. Skipulagið skilgreinir uppbyggingu baðlóns á svæð­inu. Markaðir eru byggingarreitir og skilgreind heimild til uppbyggingar á þeim. Einnig er gert ráð fyrir að byggt verði við núverandi skíðaskála.
Deiliskipulag þetta hefur hlotið meðferð skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.

 

Þorlákshöfn, 13. september 2023.

 

Gunnlaugur Jónasson skipulagsfulltrúi.


B deild - Útgáfud.: 14. september 2023