Deiliskipulagsbreyting, Stuðlaskarð 6. Á afgreiðslufundi skipulags- og byggingarfulltrúa Hafnarfjarðar þann 23. október 2019 var samþykkt breyting á lóðinni við Stuðlaskarð 6 og erindið afgreitt skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin hefur ekki áhrif á aðra hagsmunaaðila þar sem Hafnarfjarðarkaupstaður er aðliggjandi lóðarhafi. Deiliskipulagsbreytingin öðlast þegar gildi.
F.h. skipulagsfulltrúa Hafnarfjarðar, 23. október 2019,
Gunnþóra Guðmundsdóttir arkitekt.
|