Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 990/2020

Nr. 990/2020 5. október 2020

REGLUGERÐ
um (7.) breytingu á reglugerð nr. 745/2016, um vigtun og skráningu sjávarafla.

1. gr.

3. mgr. 8. gr. reglugerðarinnar orðist svo:

Vigtarmanni er heimilt að draga frá 12% þegar kælt er með flöguís eða 7% þegar kælt er með ísþykkni af óunnum afla sem veginn er á hafnarvog frágenginn til útflutnings, beint í flutningsfar. Skipstjóri skal tryggja að upplýsingar um kælimiðil berist til löndunarhafnar áður en afli er vigtaður og skráður. Komi í ljós við eftirlit Fiskistofu verulegt frávik frá íshlutfalli í afla skips skal vigta afla skipsins skv. 1. mgr. eða 1. mgr. 11. gr. í næstu 8 vikur. Ef ítrekuð veruleg frávik eru frá tilkynntu íshlutfalli í afla skips skal vigta afla skipsins skv. 1. mgr. og 1. mgr. 11. gr. næstu 16 vikur.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða og nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar, til þess að öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 5. október 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Arnór Snæbjörnsson.


B deild - Útgáfud.: 9. október 2020