Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Hótel Geysir og gestastofa, Haukadalur 4. Breytingin felst í því að lóðarmörk nýstofnaðar lóðar verða færð vegna smáhýsa sem eru víkjandi í skipulagi en ekki er búið að rífa. Við það breytist stærð lóðarinnar og verður 19.622 m² í stað 20.330 m². Samþykkt í sveitarstjórn 21. mars 2019.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 26. mars 2019.
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,
Rúnar Guðmundsson.
|