Samkomulag milli Evrópubandalagsins og lýðveldisins Íslands og Konungsríkisins Noregs um þátttöku þeirra ríkja í starfsemi Evrópustofnunar um framkvæmd samvinnu á ytri landamærum aðildarríkja Evrópusambandsins, sem gert var í Brussel 1. febrúar 2007, öðlaðist gildi 7. apríl 2023. Stofnun ber í dag heitið Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu (Frontex). Samkomulaginu var beitt til bráðabirgða frá degi undirritunar.
Samkomulagið er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 8. maí 2024.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
Martin Eyjólfsson.
Fylgiskjal. (sjá PDF-skjal)
|