Hraunbær 133. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarstjórn Reykjavíkur, þann 18. maí 2021, breytingu á deiliskipulagi Hraunbæjar – Bæjarháls vegna lóðarinnar nr. 133 við Hraunbæ. Í breytingunni felst að íbúðum er fjölgað um 6 úr 58 íbúðum í 64 íbúðir, bílastæðakrafa er lækkuð lítillega úr 1 stæði pr. íbúð í 0,9 stæði pr. íbúð, skilgreindur er nýr byggingarreitur fyrir sorpgerði milli byggingarreita A3 og A1 og gerðar eru breytingar á sérskilmálum til samræmis við reit C. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Grjótagata 5. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, þann 14. maí 2021, breytingu á deiliskipulagi Grjótaþorps vegna lóðarinnar nr. 5 við Grjótagötu. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit og nýtingarhlutfalli lóðarinnar auk þess að heimilt verði að byggja við húsið til vestur sem nemur núverandi viðbyggingu. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 8. júní 2021.
Björn Axelsson.
|