Sveitarstjórn Sveitarfélagsins Hornafjarðar samþykkti þann 14. febrúar 2019 breytingu á deiliskipulagi tengivirkis í landi Hnappavalla. Deiliskipulagsbreytingin er gerð þar sem fyrirhuguð mannvirki hafa verið minnkuð og lækkuð auk þess sem gert verður ráð fyrir nýju raflínumastri. Einnig verða gerðar tvær lóðir innan skipulagssvæðis í stað einnar. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytingin öðlast þegar gildi.
Sveitarfélaginu Hornafirði, 21. febrúar 2019.
Gunnlaugur Róbertsson skipulagsstjóri.
|