Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 864/2019

Nr. 864/2019 1. október 2019

AUGLÝSING
um deiliskipulag í Bláskógabyggð.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftir­farandi deiliskipulagsáætlun:

Deiliskipulagsbreyting, Lindarbraut 8, landnr. 167841 (Ösp).
Óveruleg breyting er gerð á gildandi skipulagi þéttbýlis á Laugarvatni. Breytingin felst í að landnotkun lóðarinnar verður breytt úr íbúðarbyggð í svæði fyrir stofnanir.
Samþykkt í sveitarstjórn 9. maí 2019.

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

Laugarvatni, 1. október 2019.

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,

Rúnar Guðmundsson.


B deild - Útgáfud.: 2. október 2019