Bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt eftirfarandi breytingu á deiliskipulagi:
Lynghólar 32-38, breyting á deiliskipulagi Hraunsholts eystra. Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðirnar Lynghólar 32, 34, 36 og 38 breytist úr raðhúsalóðum í tvíbýlishúsalóðir. Íbúðum fjölgar úr 4 í 8. Byggingarmagn og hæð húsa er óbreytt. Gert verður ráð fyrir utanhússstigum sem ná út fyrir byggingarreit að framanverðu.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.
Garðabæ, 13. september 2017.
Arinbjörn Vilhjálmsson skipulagsstjóri.
|