Deiliskipulag Sementsreits á Akranesi. Bæjarráð í umboði bæjarstjórnar Akraness samþykkti 14. júlí 2022 breytingu á deiliskipulagi Sementsreits, vegna svæðis C og D. Í breytingunni felst að tvær lóðir á C reit eru sameinaðar í eina lóð og fjórar lóðir á D reit eru sameinaðar í eina lóð. Deiliskipulagsbreytingin hefur hlotið meðferð skv. 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Akranesi, 26. júlí 2022.
Sigurður Páll Harðarsson sviðsstjóri.
|