Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Austurey I og III, frístundabyggð. Breyting er gerð á skilmálum deiliskipulags frístundabyggðar í landi Austureyjar I og III. Núverandi skilmálar gera ráð fyrir að þakhalli skuli vera á bilinu 14-60°. Eftir breytingu verður þakhalli innan svæðisins 0-60°. Samþykkt í sveitarstjórn 24. júní 2021.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 24. ágúst 2021.
Skipulagsfulltrúi Umhverfis og tæknisviðs uppsveita bs.,
Vigfús Þór Hróbjartsson.
|