Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 736/2022

Nr. 736/2022 7. júní 2022

REGLUR
um breytingu á reglum nr. 643/2011 um meistaranám við félagsvísindasvið Háskóla Íslands.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 18. gr. reglnanna:

  1. 2. málsl. 5. mgr. fellur brott.
  2. Á eftir 5. mgr. bætist við ný mgr., svohljóðandi:
      Nemendur í MS-námi í reikningshaldi og endurskoðun geta skrifað ritgerð tveir saman, samtals 60 ECTS, sem skiptast jafnt á milli þeirra.

 

2. gr.

Reglur þessar, sem háskólaráð Háskóla Íslands hefur samþykkt, að fenginni tillögu félagsvísinda­sviðs, eru settar samkvæmt heimild í lögum nr. 85/2008 um opinbera háskóla, sbr. 69. gr. reglna nr. 569/2009 fyrir Háskóla Íslands. Reglurnar öðlast þegar gildi.

 

Háskóla Íslands, 7. júní 2022.

 

Jón Atli Benediktsson.

Þórður Kristinsson.


B deild - Útgáfud.: 22. júní 2022