Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 254/2020

Nr. 254/2020 25. mars 2020

REGLUGERÐ
um (2.) breytingu á reglugerð nr. 165/2020, um hrognkelsaveiðar árið 2020.

1. gr.

Við reglugerðina bætist nýtt bráðabirgðaákvæði sem orðast svo:

Frá og með 20. mars 2020 er heimilt að gera hlé á veiðum í að lágmarki 14 daga ef skipstjóri eða áhöfn verður fyrirskipað að fara í sóttkví eða einangrun til að hindra útbreiðslu Covid-19 veirunnar. Öll net skulu dregin upp áður en hlé er gert á veiðum. Útgerðaraðili skips skal senda tilkynningu þess efnis ásamt vottorði til Fiskistofu á netfangið [email protected] á upphafsdegi veiðihlés. Einnig skal tilkynna á sama netfang, með að minnst eins dags fyrirvara, hvenær veiðar hefjast á ný.

 

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt ákvæðum laga nr. 79/1997, um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, laga nr. 116/2006, um stjórn fisk­veiða og laga nr. 57/1996, um umgengni um nytjastofna sjávar og öðlast þegar gildi.

 

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu, 25. mars 2020.

 

Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Þorsteinn Sigurðsson.


B deild - Útgáfud.: 25. mars 2020