Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:
Deiliskipulagsbreyting, Brautarholt á Skeiðum. Breytingin felur í sér ýmsar breytingar á stærðum lóða og byggingarformi. Lóðin Holtabraut 18‑20 stækkar, lóðirnar Holtabraut 21 og 23 minnka og breytast í raðhúsalóðir og lóðin Vallarbraut 11 stækkar og breytist í raðhúsalóð. Einnig er breyting á byggingarreit á Malarbraut 2 svo og breyting á veglínu Vallarbrautar til suðurs vegna stækkunar lóðarinnar Holtabrautar 20. Samþykkt í sveitarstjórn þann 5. desember 2018.
Ofangreind deiliskipulagsáætlun hafa hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.
Laugarvatni, 26. mars 2019.
Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,
Rúnar Guðmundsson.
|