Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 43/2021

Nr. 43/2021 7. október 2021

AUGLÝSING
um bókun um breytingu á samningi um opinber innkaup.

Hinn 27. febrúar 2014 var aðalframkvæmdastjóra Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar afhent staðfest­ingar­skjal Íslands vegna bókunar, sem gerð var í Genf 30. mars 2012, um breytingu á samningi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar um opinber innkaup, sem gerður var í Marakess 15. apríl 1994, sbr. auglýsingu í C-deild Stjórnartíðinda nr. 10/2001, þar sem samningurinn er birtur.

Í 3. tölulið bókunarinnar er fjallað um lagaskil milli bókunarinnar og eldri samningsins frá 15. apríl 1994.

Bókunin öðlaðist gildi gagnvart Íslandi 29. mars 2014 og er birt sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Utanríkisráðuneytinu, 7. október 2021.

 

F. h. r.

Martin Eyjólfsson.

Anna Jóhannsdóttir.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 15. nóvember 2021