Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 142/2019

Nr. 142/2019 10. janúar 2019

GJALDSKRÁ
fyrir Hafnarsjóð Fjallabyggðar.

I. KAFLI

Almenn ákvæði.

1. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Fjallabyggðar er sett skv. heimild í 17. gr. hafnalaga nr. 61/2003, sbr. bráðabirgðaákvæði nr. 1.

Gjaldskráin er við það miðuð að Hafnarsjóður Fjallabyggðar geti haft nægar tekjur til þess að standa undir rekstri hafna, sbr. 5. tölulið 3. gr. hafnalaga.

II. KAFLI

Um gjaldtöku tengda stærð skipa.

2. gr.

Við ákvörðun gjalda, sem taka mið af stærð skipa, skal miðað við brúttótonnatölu skipa samkvæmt alþjóðlegu mælingarbréfi, sem gefið er út í samræmi við alþjóðasamþykktina um mælingu skipa frá 1969.

3. gr.

Af öllum skipum skal greiða tilheyrandi gjöld til hafnarsjóðs ef þau koma inn fyrir takmörk hafnar­innar og njóta þjónustu hennar.

Skipagjöld.

4. gr.

Lestargjöld:

Af öllum skipum skal greiða lestargjald, kr. 16 á mælieiningu skv. 2. gr. en þó ekki oftar en tvisvar í mánuði.

Bryggjugjöld:

Af öllum skipum undir 14.999 brt sem leggjast við bryggju eða hafnarbakka skal greiða kr. 7,10 á mælieiningu fyrir hverja byrjaða 24 tíma, sem skip liggur bundið, þó að hámarki 13 sinnum í mánuði, en skip yfir 14.999 brt skulu greiða 30% álag á bryggjugjald.

Heimilt er að taka lestar- og bryggjugjald af fiskiskipum og minni bátum, sem mánaðargjald sem er kr. 100 á mælieiningu á mánuði. Þó gilda eftirfarandi lágmörk:

Bátar undir 10 brt, kr. 7.300.
Bátar 10-20 brt, kr. 8.300.
Bátar yfir 20 brt, kr. 12.300.

Farþega-, hvalaskoðunar- og sjóstangveiðibátar yfir 20 tonn greiða tvöfalt viðlegugjald.

Þau skip og bátar sem ekki greiða aflagjald í 6 mánuði samfellt greiða tvöfalt viðlegugjald.

Einnig er heimilt að innheimta bryggjugjöld sem daggjöld af smærri bátum fyrir allt að 10 daga:

Smábátar undir 10 brt, kr. 500 á dag.
Smábátar 10-20 brt, kr. 650 á dag.
Viðlegugjald fyrir fastan bás við flotbryggju N á Siglufirði, kr. 114.000 pr. ár.
Viðlegugjald fyrir fastan bás við flotbryggju N á Siglufirði, kr. 42.000 pr. 3 mánuði.
Viðlegugjald fyrir fastan bás við flotbryggju S á Siglufirði, kr. 82.000 pr. ár.
Viðlegugjald fyrir fastan bás við flotbryggju S á Siglufirði, kr. 34.000 pr. 3 mánuði.
Viðlegugjald við flotbryggju án fasts báss, kr. 8.200 á mánuði.
Legufæragjald, kr. 20.000 á ári.
Afsláttur ellilífeyrisþega af legufæragjaldi 20%.
Uppsátursgjald, kr. 2.000.
Skútur og skemmtibátar, innifalið vatn og rafmagn, kr. 21.000 pr. viku.

Vörugjöld.

5. gr.

Vörugjald skal greiða af öllum vörum sem fluttar eru af skipsfjöl á land eða úr landi á skipsfjöl, eða úr einu skipi í annað, innan takmarka hafnarinnar, þó með þeim undantekningum er síðar getur.

6. gr.

Fyrir vörur sem samkvæmt farmskrá skips eru ákveðnar til annarrar hafnar, innlendrar eða erlendrar, en eru látnar á land um stundarsakir, skal aðeins greitt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land. Undanþegnar þessu gjaldi eru vörur sem látnar eru á land um stundarsakir vegna skemmda á skipi.

7. gr.

Af vörum, sem fluttar eru á skip og fara eiga til annarra hafna innanlands greiðist hálft vörugjald.

Af vörum sem koma frá útlöndum og fara eiga áfram til útlanda er heimilt að innheimta fullt vörugjald þegar vörurnar eru fluttar í land.

8. gr.

Þessar vörur eru undanþegnar vörugjaldi:

  a) Umbúðir sem endursendar eru.
  b) Olía, vistir og aðrar nauðsynjar skipa til eigin notkunar.
  c) Almennar póstsendingar og farangur ferðamanna.
  d) Úrgangur sem fluttur er til eyðingar.

9. gr.

Vörugjald reiknast eftir þyngd eða verðmæti, með umbúðum og af hverri sendingu sérstaklega. Fara skal eftir farmskrá skipa við útreikning vörugjalds. Skipstjóri eða afgreiðslumaður skips skal láta hafnarstarfsmönnum í té afrit af farmskrá. Sé engri farmskrá til að dreifa skal skipstjóri gefa drengskaparvottorð um vörumagn sem fermt hefur verið eða affermt úr skipi hans. Þyki hafnar­vörðum ástæða til getur hann hvenær sem er látið ákveða vörumagnið á þann hátt sem hann telur hentugast. Reynist vörumagnið vera meira en upp er gefið greiðir farmeigandi kostnaðinn. Séu fleiri en ein vörutegund í sendingu ósundurliðað skal reikna vörugjaldið eftir þeirri tegund sem hæst gjald skal greiða af.

10. gr.

Vörur skal flokka til vörugjalds eftir því sem vörugjaldskrá tiltekur og gjaldið greiðist eins og þar segir:

Vörugjaldskrá:

1. fl.: Gjald kr. 260 fyrir hvert tonn:
  Kol, laust korn, salt, vikur, kísilgúr, bensín, brennsluolíur, þörungamjöl, sement, áburður og úrgangur sem fluttur er til endurvinnslu.
   
2. fl.: Gjald kr. 440 fyrir hvert tonn:
  Lýsi og fiskimjöl.
   
3. fl.: Gjald kr. 550 fyrir hvert tonn:
  Þungavarningur, svo sem sekkjavörur, óunnið járn og stál, veiðarfæri, smurningsolíur, landbún­aðar­afurðir, sjávarafurðir og hráefni til iðnaðar og byggingaframkvæmda. Pökkuð og niðursoðin matvæli, óáfengar drykkjarvörur og ávextir.
   
4. fl.: Gjald kr. 1.200 fyrir hvert tonn:
  Allar vörur sem ekki eru tilgreindar í 8. gr. og í 1.-3. flokki.
   
5. fl.: Aflagjald; 1,6% af vergu aflaverðmæti.
  Sjávarafli lagður á land eða í skip á hafnarsvæðinu til vinnslu eða brottflutnings, þ.m.t. fiskur og seiði úr eldiskvíum.
  Gjaldið reiknast af heildarverðmæti aflans. Gjald af fullunnum frystum afla frystitogara og eldisfiski reiknast af helmingi heildarverðmætis aflans. Gjald af saltfiski reiknast miðað við tvöfalda þyngd og gjald af gámafiski reiknast af áætluðu heildarverði.
  Seljanda aflans ber að afhenda hafnarstjóra skýrslu um seldan afla um leið og sala hefur átt sér stað, t.d. afrit af aflaskýrslu til Fiskistofu. Við sölu afla til skyldra aðila skv. 3. mgr. 9. gr. laga nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegs­manna skal að lágmarki miðað við skiptaverð Verðlagsstofu skiptaverðs. Heimilt er að semja sérstaklega við stórnotendur. Aflagjaldið fellur í gjalddaga um leið og afla er landað. Seljandi ber skil á greiðslu aflagjalds.
  Lágmarksgjald í öllum flokkum er kr. 170.

Leiga á gámasvæði, geymsla veiðarfæra.

11. gr.

Leiga fyrir geymslusvæði skal vera eftirfarandi (gámar og bátar):

Geymsla á malarsvæði, kr. 70 pr. m².

Geymsla á malbikuðu svæði, kr. 120 pr. m².

Geymsla á veiðarfærum og öðrum búnaði eða bátum á hafnarköntum er gjaldfrjáls í 5 daga. Þá greiðast kr. 3.000 á hvern hafinn sólarhring.

Geymsla er aðeins heimil með leyfi hafnavarða.

Sorphirða.

12. gr.

Móttaka á sorpi, ein ferð í sorpmóttöku 9.757 kr.

Einnig skal greiða fyrir innvegið magn af sorpi samkvæmt gjaldskrá sorpmóttakanda.

 

  a) Úrgangsgjald: Við komu skips til hafnar skal greiða 0,68 kr. á hvert brúttótonn skips sem standa skal undir kostnaði vegna eftirlits og umsýslu vegna móttöku á sorpi. Lágmarks­gjald 5.143 kr. og hámarksgjald 45.133 kr.
  b) Úrgangsgjald: Gjald sem er lagt á vegna a-liðar má lækka ef skipstjóri getur sýnt fram á að minni úrgangur verði til um borð í skipinu, þá er lágmarksgjald 5.143 kr. og hámarks­gjald 23.093 kr.
  c) Úrgangsgjald: Skip og bátar sem koma oftar en fjórum sinnum til hafnar á árinu greiða sam­kvæmt b-lið fyrir fimmtu komu og allar komur eftir það.
  d) Skip og bátar sem hafa varanlega viðlegu í höfnum Fjallabyggðar skulu greiða fast mán­aðar­gjald vegna umsýslu og eftirlits hafnar vegna móttöku á sorpi. Gjaldið skal vera 5.143 kr. á mánuði.
  e) Förgunargjald: Við komu til hafnar skulu öll skip sem falla undir 11. gr. laga nr. 33/2004 greiða förgunargjald óháð því hvort þau skili úrgangi í land eða ekki. Óski skipstjóri eða útgerðarmaður eftir þjónustu viðurkennds sorpmóttökuaðila þá greiðir hann allan kostnað þar að lútandi og skal skila til hafnarinnar útfylltu eyðublaði um magn og sundurliðun þess úrgangs sem skilað er í land. Misbrestur á þessu getur leitt til tilkynningar til Umhverfis­stofnunar.
  f) Förgunargjald: Skip sem eru undanþegin gjaldskyldu samkvæmt 1. tl. 2. mgr. 17. gr. hafna­­laga skulu eftir sem áður greiða fyrir losun og förgun sorps hvort sem óskað er eftir viður­kenndum móttökuaðila eða ekki.
  g) Skipstjóri eða eigandi skips sem hefur fengið undanþágu frá Umhverfisstofnun um skil á sorpi, farmleyfum eða tilkynningum skal framvísa gildri staðfestingu þess efnis.

Sorphirðugjald atvinnubáta, einstök skipti kr. 2.300.

Sorphirðugjald atvinnubáta, einstök skipti (sérlosun) kr. 20.000.

Sorphirðugjald frístundabáta, kr. 550 á mánuði.

Sorphirðugjald atvinnubáta undir 20 brt, kr. 2.100 á mánuði.

Sorphirðugjald atvinnubáta 20-100 brt, kr. 3.500 á mánuði.

Sorphirðugjald skipa yfir 100 brt, kr. 6.500 á hverja löndun.

Hafnsögugjöld.

13. gr.

Hafnsögugjöld skulu greidd samkvæmt eftirfarandi gjaldskrá:

  a) Fyrir leiðsögu til hafnarinnar kr. 36.000 fyrir hvert skip, auk kr. 7,10 fyrir hvert brúttó­tonn. Fyrir leiðsögu frá höfninni greiðist sama gjald.
  b) Fari hafnsögumaður um borð í skip utan hafnarmarka greiðast aukalega kr. 28.000.

Festargjöld.

14. gr.

Festargjöld fyrir hverja afgreiðslu þar sem starfsmaður hafnarinnar tekur á móti skipi á dag­vinnu­tíma greiðast kr. 13.500 á hvern mann. Hafnarverðir meta mönnunarþörf ef óskað er eftir afgreiðslu.

Fyrir hverja afgreiðslu utan dagvinnutíma greiðast kr. 16.500.

Sé fleiri en einn maður við afgreiðslu er gjald fyrir hvern aukamann kr. 16.500.

Á stórhátíðum er festargjald kr. 23.000 fyrir hvern mann.

Vatnssala.

15. gr.

Vatnsgjöld: Vatn afgreitt frá bryggju:

Kalt vatn til smábáta er innifalið í viðlegugjaldi.

Kalt vatn til fiskiskipa yfir 30 brt, 316 kr./m³.

Kalt vatn til fragtskipa, 316 kr./m³.

Kalt vatn til skemmtiferðaskipa, 316 kr./m³.

Lágmarksgjald miðast við 10 tonn.

Vigtargjald.

16. gr.

Grunngjald fyrir vigtun er kr. 1.200, vigtun og kranagjald eru innifalin ef afli er undir 1 tonni.

Almenn vigtun, kr. 163 á tonn.

Úrtaksgjald á tonn sem ekki er vigtað, kr. 97 á tonn.

Stakir bílar, kr. 1.734.

Gjald fyrir yfirvinnu við vigtun er kr. 6.120 á klst. á hvern mann. Lágmarksútkall er 2 klst.

Löndunarkranagjald.

17. gr.

Löndun með hafnarkrana, kr. 325 pr. tonn. Kranagjald er innifalið í vigtunargjaldi ef aflinn er undir 1 tonni.

Rafmagnssala.

18. gr.

Fyrir 40 feta gám, kr. 2.100 á sólarhring eða samkvæmt mæli.

Fyrir 20 feta gám, kr. 2.100 á sólarhring eða samkvæmt mæli.

Rafmagnsverð til skipa er samkvæmt taxta rafveitna, með 24% álagi (18,10 kr. pr. kWst).

Fari tenging fram á dagvinnutíma, kr. 4.400.

Fari tenging fram utan dagvinnutíma greiðist tengigjald, kr. 8.800.

Fyrir leigu á rafmagnsmæli greiðast, kr. 400 á sólarhring.

Rafmagnsgjöld geta tekið breytingum án fyrirvara vegna gjaldskrárbreytinga birgja hafnarinnar hverju sinni.

Móttaka skipa sem falla undir ISPS-kóða.

19. gr.

Öryggisgjald greiðist á hverja komu, kr. 43.000.

Öryggisgjald pr. öryggisvörð í dagvinnu, kr. 5.500 á klst.

Öryggisgjald pr. öryggisvörð í yfirvinnu, kr. 10.000 á klst.

Farþegagjöld.

20. gr.

Fyrir hvern fullorðinn með farþegabátum og skemmtiferðaskipum, kr. 1,25 € (evra).

Fyrir hvert barn með farþegabátum og skemmtiferðaskipum, kr. 0.

Skemmtiferðaskip skulu skila inn farþegalistum minnst einum sólarhring fyrir komu, en farþega­bátar með áætlunarsiglingar til og frá höfnum Fjallabyggðar skila inn gögnum fyrir fjölda farþega mánaðarlega.

Opnunartími hafnavoga.

21. gr.

Hafnarvogin Siglufirði er opin:

 

  a) Á tímabilinu 1. september – 30. apríl frá kl. 08.00-18.00 virka daga og frá kl. 16.00-18.00 á laugardögum.
  b) Á tímabilinu 1. maí – 31. ágúst frá kl. 08.00-21.00 virka daga og frá kl. 16.00-18.00 á laugar­dögum.

Hafnarvogin Ólafsfirði er opin:

  a) Á tímabilinu 1. september – 30. apríl frá kl. 08.00-17.00 virka daga.
  b) Á tímabilinu 1. maí – 31. ágúst frá kl. 08.00-18.00 virka daga og frá kl. 16:00-18:00 á laugar­dögum.

 

Opnunartími hafnavoga á grásleppuvertíð er frá kl. 08.00-18.00 virka daga og laugardaga frá kl. 15.00-18.00.

Fyrir þjónustu hafnarvarða utan opnunartíma og eftir kl. 19.00 á tímabili skv. b-lið greiðist yfir­vinna.

III. KAFLI

Um innheimtu og greiðslu gjalda.

22. gr.

Skrifstofa Fjallabyggðar sér um innheimtu gjalda skv. gjaldskrá þessari og hefur heimild til að leggja á innheimtugjald kr. 250.

Hafi gjöld ekki verið greidd á eindaga reiknast dráttarvextir af gjaldfallinni fjárhæð frá gjalddaga skv. 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu nr. 38/2001.

23. gr.

Skipstjóri og eigandi skips bera ábyrgð á greiðslu gjalda þeirra sem greiða ber til Hafnarsjóðs Fjalla­byggðar vegna skipsins. Skipstjóra er skylt við komu til hafnar að gefa starfsmönnum við­komandi hafnar upplýsingar um skipið í samræmi við ákvæði 5. mgr. 33. gr. reglugerðar nr. 326/2004 um hafnamál. Hann skal einnig afhenda þjóðernis- og skrásetningarskírteini skipsins, ef þess er krafist vegna ófullnægjandi upplýsinga frá skipstjóra. Hafnarsjóður hefur haldsrétt yfir skírteinum uns gjöld eru greidd. Töf og tjón sem af þessu hlýst er einvörðungu á ábyrgð og kostnað greiðanda áfallinna gjalda.

Áfallin gjöld skal greiða áður en skip fer burt úr höfninni. Skipstjóri getur ekki vænst þess að fá afgreiðslu fyrir skip sitt hjá sýslumanni eða tollstjóra, nema hann sanni með vottorði frá hafnar­stjóra að hann hafi greitt öll gjöld sín til hafnarinnar.

24. gr.

Vörugjald greiðist af öllum vörum sem eru affermdar, afhentar eða fluttar, eða á annan hátt sjó­leiðis eða landleiðina, inn fyrir mörk hafnarinnar. Vörugjaldið reiknast skipi til skuldar áður sem skip hefur siglingu, nema sérstaklega sé samið um annað. Vörugjald er á ábyrgð farmflytjanda og er afhending vöru án greiðslu vörugjalds á hans ábyrgð.

Ef vörur eru fluttar úr einu skipi í annað greiðir sá vörugjaldið sem affermir.

Vörugjald af vörum sem koma til hafnarinnar fellur í gjalddaga þegar skipið sem vörurnar flytur er komið í höfnina og vörugjald af vörum sem fluttar eru úr höfninni fellur í gjalddaga þegar vörurnar eru komnar í skip. Skipstjóra og afgreiðslumanni skips er óheimilt að afhenda vörurnar fyrr en gjaldið er greitt.

25. gr.

Öll gjöld samkvæmt gjaldskrá þessari má ávallt tryggja með aðför að undangengnum dómi.

Skipagjöld eru tryggð með lögveði í viðkomandi skipi eða vátryggingarfé. Gengur það veð í tvö ár fyrir samningsveðkröfum, sbr. ákvæði 2. mgr. 21. gr. hafnalaga nr. 61/2003. Hafnarsjóði Fjalla­byggðar er heimilt að krefjast frekari trygginga fyrir greiðslu áfallinna gjalda ef ástæða þykir til.

26. gr.

Öll gjöld í gjaldskrá þessari eru án virðisaukaskatts. Hafnarsjóði Fjallabyggðar er skylt að innheimta virðisaukaskatt af gjöldum í gjaldskrá þessari, sbr. 3. tl. 3. gr. laga nr. 50/1988 um virðisaukaskatt.

IV. KAFLI

Gildistaka.

27. gr.

Gjaldskrá þessi fyrir Hafnarsjóð Fjallabyggðar er samþykkt af hafnarstjórn þann 5. nóvember 2018, skv. hafnalögum nr. 61/2003 og 37. gr. reglugerðar um hafnamál nr. 326/2004 og staðfest af bæjar­stjórn þann 29. nóvember 2018.

Gjaldskráin öðlast þegar gildi og er til eftirbreytni öllum þeim, sem hlut eiga að máli. Jafnframt fellur úr gildi gjaldskrá sama efnis nr. 726/2018.

Fjallabyggð, 10. janúar 2019.

Gunnar Ingi Birgisson bæjarstjóri.

 


B deild - Útgáfud.: 11. febrúar 2019