Hinn 6. júlí 2022 var bandaríska utanríkisráðuneytinu afhent staðfestingarskjal Íslands vegna viðbótarsamnings sem gerður var í Brussel 5. júlí 2022 við Norður-Atlantshafssamninginn frá 4. apríl 1949 um aðild Lýðveldisins Finnlands, sbr. Samninga Íslands við erlend ríki nr. 75, þar sem samningurinn er birtur, 76 og 77 og auglýsingar í C-deild Stjórnartíðinda nr. 10/1982, 28/1998, 29/1998, 30/1998, 36/2003, 37/2003, 38/2003, 39/2003, 40/2003, 41/2003, 42/2003, 50/2021, 60/2021 og 19/2022, 20/2022 og 21/2022. Alþingi heimilaði hinn 7. júní 2022, með þingsályktun 19/152, ríkisstjórninni að staðfesta viðbótarsamninginn þegar hann lægi fyrir. Tilkynnt verður um gildistöku viðbótarsamningsins síðar.
Viðbótarsamningurinn er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.
Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.
Utanríkisráðuneytinu, 13. desember 2022.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.
|