Haukadalsmelar, deiliskipulag. Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti þann 20. júlí 2020 tillögu að deiliskipulagi fyrir Haukadalsmela. Á svæðinu var fyrir lendingarstaður fyrir flugvélar en gert var ráð fyrir þremur flugskýlum og félagsheimili auk 22 lóða fyrir frístundahús í deiliskipulaginu. Aðkoma verður af Þingskálavegi (268). Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Hellu, 23. desember 2020.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
|