Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 5/2020

Nr. 5/2020 30. desember 2020

AUGLÝSING
um samkomulag í formi bréfaskipta milli Evrópusambandsins, Bretlands og Íslands um tímabundið óbreytt fyrirkomulag á miðlun persónuupplýsinga til Bretlands.

 

Með bréfaskiptum í Brussel 29. og 30. desember 2020 var gengið frá samkomulagi milli Evrópusambandsins, Bretlands og Íslands um tímabundið óbreytt fyrirkomulag á miðlun persónu­upplýsinga frá Íslandi til Bretlands.

Samkvæmt efni samkomulagsins skal því beitt til bráðabirgða frá 1. janúar 2021 að hámarki til sex mánaða. Tilkynnt verður síðar um gildistöku samkomulagsins.

Samkomulagið er aðgengilegt á heimasíðu utanríkisráðuneytisins þar sem unnt er að kynna sér efni þess.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Utanríkisráðuneytinu, 30. desember 2020.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Martin Eyjólfsson.


C deild - Útgáfud.: 30. desember 2020