Næfurholt, deiliskipulag. Sveitarstjórn Rangárþings ytra samþykkti á fundi sínum 14. október 2021 tillögu að deiliskipulagi fyrir lóð úr landi Næfurholts. Deiliskipulagið gerir ráð fyrir lóð undir íbúðarhús og bílskúr sem fengi heitið Næfurholt 2. Aðkoma er af Þingskálavegi (268) um núverandi aðkomuveg (2759). Tillagan hefur hlotið skipulagsmeðferð í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Deiliskipulagið öðlast þegar gildi.
Hellu, 9. nóvember 2021.
F.h. Rangárþings ytra,
Birgir Haraldsson, skipulags- og byggingarfulltrúi.
|