1. gr.
Stjórn sjóðsins hefur samþykkt eftirfarandi breytingu á skipulagsskrá sjóðsins:
2. gr. skipulagsskrárinnar verði svohljóðandi:
Markmið sjóðsins er stuðningur við nýjungar í læknisfræði, einkum á sviði heila- og hjartaskurðaðgerða, augnlækninga og öldrunarsjúkdóma.
Ár hvert skal sjóðstjórn úthluta tekjum sjóðsins, sbr. 4. gr. skipulagsskrár þessarar, til verkefna, nýjunga eða rannsókna sem samræmast markmiði hans. Stjórn hefur heimild til að úthluta árlega allt að kr. 10.000.000 af öðrum eignum sjóðsins með sama markmiði. Tekjum og eignum sjóðsins skal ekki ráðstafað í öðrum tilgangi en þeim sem samræmist markmiði hans.
2. gr.
Ofangreind breyting á skipulagsskrá fyrir Minningarsjóð Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar tilstuðnings nýjungum í læknisfræði staðfestist hér með samkvæmt lögum nr. 19/1988 um sjóði og stofnanir sem starfa samkvæmt staðfestri skipulagsskrá.
F.h. sýslumannsins á Norðurlandi vestra, 10. nóvember 2022,
Björn Hrafnkelsson.
|