Breyting á deiliskipulagi við Varmá í Hveragerði. Á fundi bæjarstjórnar Hveragerðisbæjar 12. maí 2021 var samþykkt breyting á deiliskipulagi við Varmá í Hveragerði. Deiliskipulagssvæðið er um 11 ha að flatarmáli og að mestu leyti innan reits VÞ2 í aðalskipulagi og afmarkast til suðurs af lystigarðinum Fossflöt, til vesturs af götunni Breiðumörk, til norðurs af opnu svæði norðan Friðarstaða og til austurs af Varmá. Breytingin felur m.a. í sér nýjar lóðir fyrir ferðatengda þjónustu, gróðurhús og nýjar íbúðalóðir. Meginmarkmið deiliskipulagsins er að skapa grundvöll fyrir uppbyggingu ferða- og heilsutengdrar þjónustu og skapa gott aðgengi að Varmá með gerð göngustíga og áningarsvæða. Tvær eldri deiliskipulagsáætlanir, deiliskipulag á Friðarstöðum og deiliskipulag Hverhamars og Hverahvamms, falla úr gildi við gildistöku þessa deiliskipulags. Ofangreind deiliskipulagsbreyting hlaut meðferð skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
Hveragerði, 19. júlí 2021.
Guðmundur F. Baldursson skipulagsfulltrúi.
|