Hæðarland 32-42, deiliskipulagsbreyting. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkti á fundi sínum 2. nóvember 2022 óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi Austurbyggðar II á Selfossi. Breytingin felst í því að byggingarreitur fyrir lóðina Hæðarland 32-42, færist til suðurs um einn metra. Annað breytist ekki.
Björkurstekkur, deiliskipulagsbreyting. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkti á fundi sínum 2. nóvember 2022 óverulega breytingu á gildandi deiliskipulagi íbúðarsvæðis Björkurstykkis. Breytingin tekur til stækkunar byggingarreits grunnskóla, þar sem byggingarreitur er færður um tvo metra til suðurs. Breytingin er vegna óska um stækkun sérkennsluálmu og smíðakennslustofu. Annað breytist ekki.
Árvegur 1, HSU, deiliskipulagsbreyting. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Árborgar samþykkti á fundi sínum 24. ágúst 2022 tillögu að breytingu á gildandi deiliskipulagi fyrir Árveg 1 á Selfossi. Breytingin er vegna áforma um stækkun á húsnæði Heilbrigðisstofnunar Suðurlands (HSU). Umfang stækkunar er meira en núverandi heimildir í gildandi deiliskipulagi. Breytingin felur í sér auknar byggingarheimildir og rýmri byggingarreit.
Deiliskipulagstillögurnar hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og öðlast þegar gildi.
F.h. bæjarstjórnar, 7. nóvember 2022,
Rúnar Guðmundsson skipulagsfulltrúi.
|