Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 94/2020

Nr. 94/2020 23. janúar 2020

AUGLÝSING
um breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar vegna verslunar- og þjónustusvæðis á Melanesi á Rauðasandi.

Skipulagsstofnun staðfesti 23. janúar 2020 breytingu á aðalskipulagi Vesturbyggðar 2006-2018 sem samþykkt var í bæjarstjórn 11. desember 2019.
Í breytingunni felst að landnotkun er breytt á jörðinni Melanesi á Rauðasandi, úr landbún­aðar­svæði yfir í verslunar- og þjónustusvæði (V11) fyrir ferðaþjónustu og skilgreint er nýtt vatnsból.
Málsmeðferð var samkvæmt 1. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

 

Skipulagsstofnun, 23. janúar 2020.

 

Ásdís Hlökk Theodórsdóttir.


B deild - Útgáfud.: 10. febrúar 2020