1. gr.
Gildistaka reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/500.
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/500 frá 25. mars 2019 um að koma á fót viðbúnaðarráðstöfunum að því er varðar samræmingu almannatrygginga í kjölfar úrsagnar Bretlands úr sambandinu skal öðlast gildi hér á landi, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 32/2019 frá 29. mars 2019 um breytingu á VI. viðauka (félagslegt öryggi) og bókun 37 við EES-samninginn, sbr. einnig 3. gr. laga nr. 2/1993 um Evrópska efnahagssvæðið, með síðari breytingum og bókun 1 við EES-samninginn.
Reglugerðin skal gilda með þeirri aðlögun sem fram kemur í ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 32/2019.
2. gr.
Efni.
Í reglugerð þessari er mælt fyrir um gildistöku reglugerðarinnar varðandi þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 443/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar (réttindi úr lífeyrissjóðum og til barnabóta (I)) og fjármála- og efnahagsráðherra fer með.
Í reglugerð heilbrigðisráðherra nr. 781/2019 er kveðið á um gildistöku reglugerðarinnar varðandi þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 442/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar og heilbrigðisráðherra fer með.
Í reglugerð félags- og barnamálaráðherra nr. 761/2019 er kveðið á um gildistöku reglugerðarinnar varðandi þau málefni sem talin eru upp í 2. gr. reglugerðar nr. 442/2012 um gildistöku reglugerða Evrópusambandsins um almannatryggingar og félags- og barnamálaráðherra fer með.
3. gr.
Fylgiskjöl.
Ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 32/2019 frá 29. mars 2019 sem birt er í EES- viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 57 frá 18. júlí 2019, bls. 4, og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2019/500 sem birt er í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi ESB nr. 38 frá 16. maí 2019, bls. 10 eru einnig birtar sem fylgiskjöl með reglugerð félags- og barnamálaráðherra nr. 761/2019.
4. gr.
Gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 56. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, og A-lið 68. gr. og 121. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 7. október 2019.
F. h. r.
Ingibjörg Helga Helgadóttir.
|