Niðurskógur í landi Húsafells 3, Oddsskógur 3. Breyting á deiliskipulagi. Skipulags- og byggingarnefnd, sem fer með fullnaðarafgreiðsluvald sveitarstjórnar skv. samþykkt um stjórn Borgarbyggðar, samþykkti breytingu á deiliskipulagi í Niðurskógi í landi Húsafells 3, á fundi sínum 31. mars 2023. Breytingin tekur til stækkunar á einum byggingarreit, Odsskógum 3. Skipulagsáætlunin hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög nr. 123/2010 kveða á um og öðlast þegar gildi.
Borgarbyggð, 10. maí 2023.
F.h. skipulagsfulltrúa,
Þóra Margrét Júlíusdóttir verkefnastjóri.
|