Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 12/2021

Nr. 12/2021 3. mars 2021

AUGLÝSING
um samningsviðauka nr. 15 við mannréttindasáttmála Evrópu.

Hinn 3. júlí 2017 var aðalframkvæmdastjóra Evrópuráðsins afhent fullgildingarskjal Íslands vegna samningsviðauka nr. 15, sem gerður var í Strassborg 24. júní 2013, um breytingu á samningnum um verndun mannréttinda og mannfrelsis frá 4. nóvember 1950, sbr. auglýsingu í A-deild Stjórnar­tíðinda nr. 11/1954, þar sem samningurinn var upphaflega birtur.

Samningsviðaukinn hefur ekki öðlast gildi, en er birtur sem fylgiskjal með auglýsingu þessari.

Þetta er hér með gert almenningi kunnugt.

 

Utanríkisráðuneytinu, 3. mars 2021.

 

Guðlaugur Þór Þórðarson.

Martin Eyjólfsson.

 

Fylgiskjal.
(sjá PDF-skjal)


C deild - Útgáfud.: 3. maí 2021