Elliðaárdalur. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarstjórn Reykjavíkur, 15. desember 2020, deiliskipulag fyrir borgargarðinn í Elliðaárdal. Skipulagið byggir á grunni eldra deiliskipulags sem var samþykkt árið 1994 sem fellt er úr gildi. Í tillögunni eru afmörkuð og skilgreind hverfisverndarsvæði í dalnum, gerð grein fyrir helstu göngu- og hjólastígum ásamt nýjum þverunum yfir Elliðaárnar og skilgreindir helstu útivistar- og áningarstaðir. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skipulagið öðlast þegar gildi.
Helluland 1-19 og 2-24. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 19. mars 2021, breytingu á deiliskipulagi Fossvogshverfis, svæði 2, vegna lóðarinnar nr. 1-19 og 2-18 við Helluland. Í breytingunni felst stækkun á byggingarreit hússins nr. 1-5 við Helluland fyrir viðbyggingu. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Rofabær 7-9. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, 19. febrúar 2021, breytingu á hverfisskipulagi fyrir Árbæ skilmálaeiningu 7-2-4 vegna lóðarinnar nr. 7-9 við Rofabæ. Í breytingunni felst breyting á byggingarreit lóðarinnar ásamt því að uppskipting kjallara í bílakjallara og önnur rými er tekin út og texti um spennistöðvar við nýbyggingu er tekinn út. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Rofabær 32, Árbæjarkirkja. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti skipulags- og samgönguráð Reykjavíkur, með vísan til a-liðar 1. gr. í viðauka 1.1 um fullnaðarafgreiðslur umhverfis- og skipulagsráðs án staðfestingar borgarráðs, 10. mars 2021, breytingu á hverfisskipulagi fyrir Árbæ, skilmálaeining 7.2.9, vegna lóðarinnar nr. 32 við Rofabæ. Í breytingunni felst að aðalbyggingarreitur fyrir nýbyggingu er stækkaður til austurs. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Reykjavíkurhöfn, Klettasvæði. Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 samþykkti borgarráð Reykjavíkur, 11. febrúar 2021, breytingu á deiliskipulagi Reykjavíkurhafnar, Klettasvæðis, til að koma fyrir allt að 3 smáhýsum (u.þ.b. 35 m² hvert) fyrir skjólstæðinga velferðarsviðs Reykjavíkur. Tillagan gerir ráð fyrir nýrri lóð fyrir smáhýsin, á núverandi bílastæði á borgarlandi. Uppdrættir hafa hlotið meðferð samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin öðlast þegar gildi.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur, 29. mars 2021.
Björn Axelsson.
|