Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 469/2020

Nr. 469/2020 20. maí 2020

AUGLÝSING
um deiliskipulag í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 hefur sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps sam­þykkt eftirfarandi deiliskipulagsáætlun:

 

Deiliskipulagsbreyting, Kambsbraut og Stangarbraut.
Um er að ræða breytingu á gildandi deiliskipulagsskilmálum frístundabyggðar í Öndverðarnesi, sem felur í sér að eldri skilmálar eru færðir inn fyrir Kambsbraut og Stangarbraut. Leyfð hámarks­stærð húsa verður allt að 250 m², eins og var í gildandi skilmálum deiliskipulags svæðis­ins frá árinu 2005.
Samþykkt í sveitarstjórn 21. ágúst 2019. 

 

Ofangreind deiliskipulagsáætlun hefur hlotið þá meðferð sem skipulagslög mæla fyrir um og öðlast þegar gildi.

 

Laugarvatni, 20. maí 2020.

Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs.,

Vigfús Þór Hróbjartsson.


B deild - Útgáfud.: 22. maí 2020