Velkomin á vef Stjórnartíðinda
Setja síðu í 1024px vídd Setja síðu í 1280px vídd Setja síðu í 1400px vídd Fyrir sjónskerta Venjulegt letur Stækka letur Stækka letur enn meira

Sé munur á uppsetningu texta hér að neðan og í PDF skjali gildir PDF skjalið.
 28/2018

Nr. 28/2018 8. maí 2018

LÖG
um breytingu á lögum um Lífeyrissjóð starfsmanna ríkisins, nr. 1/1997, með síðari breytingum (hálfur lífeyrir).

FORSETI ÍSLANDS
gjörir kunnugt: Alþingi hefur fallist á lög þessi og ég staðfest þau með samþykki mínu:

1. gr.

    9. mgr. 24. gr. laganna orðast svo:

    Sjóðfélagi getur ákveðið að hefja töku hálfs ellilífeyris hvenær sem er eftir að 65 ára aldri er náð að því skilyrði uppfylltu að hann sé ekki í meira en hálfu starfi sem veitir aðild að sjóðnum eða hefði veitt rétt til aðildar að sjóðnum fyrir stofnun A-deildar sjóðsins.

2. gr.

    2. málsl. 2. mgr. 27. gr. laganna orðast svo: Makalífeyrir hækkar síðan um 20% af launum þeim er hann miðast við ef hinn látni sjóðfélagi hefur verið í fullu starfi við starfslok eða við töku hálfs ellilífeyris, sbr. 9. mgr. 24. gr., en hækkunin verður hlutfallslega lægri ef sjóðfélaginn hefur verið í lægra starfshlutfalli við starfslok eða þegar taka á hálfum ellilífeyri hófst.

3. gr.

    Lög þessi öðlast gildi 1. september 2018.

Gjört á Bessastöðum, 8. maí 2018.

Guðni Th. Jóhannesson.
(L. S.)

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir.


A deild - Útgáfud.: 14. maí 2018